Íslandsbanki

Íslandsbanki hf.: Tilkynning um frekari framkvæmd endurkaupaáætlunar – ný umferð endurkaupa

Källa: MFN
Positiv

Sammanfattning

Íslandsbanki hf. meddelar att de fortsätter sin återköpsplan för egna aktier. Den nya omgången syftar till att minska antalet utestående aktier och kommer att pågå fram till 27 februari 2026, med en maximal investering på 3,9 miljarder ISK eller upp till 27 miljoner aktier, vilket motsvarar cirka 1,44% av det totala antalet utestående aktier.

Analys

Banken fortsätter sin återköpsplan för egna aktier, vilket är positivt ur ett aktieägarperspektiv då det minskar antalet utestående aktier och därmed potentiellt ökar vinst per aktie. Återköpen sker till marknadspris och inom lagliga ramar. Det är dock viktigt att notera att detta är en fortsättning på en befintlig plan och inte en ny strategi. Det är också värt att notera att banken redan äger 100 518 195 egna aktier.

Nyckeltal

Totalt antal utestående aktier
1 880 470 770
Antal egna aktier som banken äger vid dagens datum
100 518 195
Maximalt antal aktier som ska köpas i denna omgång
27 000 000
Andel av utestående aktier som ska köpas
1,44%
Maximal total summa för återköpen i denna omgång
3 900 000 000 ISK
Startdatum för återköpen
7 januari 2026
Slutdatum för återköpen
27 februari 2026
Maximalt antal aktier som får köpas per dag
2 232 764

Vísað er til fyrri tilkynningar Íslandsbanka hf. (hér eftir bankinn) um framkvæmd endurkaupaáætlunar á eigin bréfum að fjárhæð 15 milljarðar króna, sem tilkynnt var um 7. júlí 2025 og hófst 8. júlí 2025. Tilkynnt var um lok þeirrar umferðar 7. ágúst 2025. Þá er vísað til tilkynningar bankans dags. 11. ágúst 2025 um frekari framkvæmd endurkaupa en þeirri umferð lauk 11. september 2025 og til tilkynningar dags. 15. september 2025 um frekari framkvæmd endurkaupa en þeirri umferð lauk 28. nóvember 2025. Loks er vísað til tilkynningar bankans dags. 1. desember 2025 um frekari framkvæmd endurkaupa og tilkynningar þann 22. desember 2025 um lok þeirrar umferðar þann 19. desember 2025. Bankinn hyggst nú halda áfram framkvæmd framangreindrar endurkaupaáætlunar í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé bankans.

Samþykkt og útgefið hlutafé bankans nemur 1.880.470.770 almennra hluta, þar sem hver hlutur er jafnvirði fimm króna. Við dagsetningu tilkynningar þessarar á bankinn 100.518.195 eigin hluti.

Að þessu sinni er áætlað að kaupa, allt að 27.000.000 hluti sem jafngildir um 1,44 % af útgefnu hlutafé bankans, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei hærri en samtals kr. 3.900.000.000. Endurkaupin hefjast á morgun, 7. janúar 2026, og munu standa yfir þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 27. febrúar 2026.

Verð fyrir hvern keyptan hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Kaup hvers dags munu að hámarki nema 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf í bankanum á skipulegum markaði Nasdaq Iceland í desembermánuði 2025, sem nemur 2.232.764 hlutum.

Endurkaupin verða framkvæmd af Arion banka hf. sem tekur ákvarðanir um kaup á hlutafé fyrir hönd bankans og tímasetningu viðskipta óháð Íslandsbanka.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014 og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglur nr. 1275/2024 um sama efni. Samþykki fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.

Viðskipti með hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í síðasta lagi í lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Þessi tilkynning er birt af Íslandsbanka hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, varðandi endurkaupaáætlunina sem lýst er að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Ellerti Hlöðverssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.

Frekari upplýsingar veita:Fjárfestatengsl - Bjarney Anna Bjarnadóttir, ir@islandsbanki.is

ViðhengiÍslandsbanki hf.: Tilkynning um frekari framkvæmd endurkaupaáætlunar – ný umferð endurkaupa