Icelandair Group

Icelandair: Metfjöldi farþega árið 2025

Källa: MFN
Neutral
Analys i realtid
Sammanfattar nyheten...
2
Viktigaste fakta
3
Initial riktning
4
Fördjupad bedömning
5
Påverkan

Icelandair flutti 344 þúsund farþega í desember 2025, 10% fleiri en í desember 2024. Þar af voru 27% á leið til Íslands, 20% frá Íslandi, 48% ferðuðust um Íslands og 6% innan Íslands. Farþegar yfir árið í heild voru 5.1 milljón, 8% fleiri en árið 2024 og sló félagið þar með nýtt farþegamet.

Stundvísi var 80,1% sem er framúrskarandi niðurstaða fyrir desember en í sama mánuði árið 2024 var hún 59,7%. Stundvísi jókst einnig fyrir árið í heild en hún var 83,9% samanborið við 82,7% árið 2024. Metsætanýting náðist í desember eða 84,1%. Kolefnislosun á hvern tonnkílómetra dróst saman um 6%, vegna hærra hlutfalls eyðslugrennri flugvéla í flotanum og góðrar sætanýtingar.

Seldum blokktímum í leiguflugi fjölgaði um 11% samanborið við desember á síðasta ári og fraktflutningar jukust um 3% á sama tíma.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:„Desember var sá stærsti í sögu okkar og einnig árið í heild en farþegafjöldinn fór í fyrsta sinn yfir fimm milljónir. Við lögðum áherslu á að auka framboð utan háannatíma til að hámarka nýtingu innviða og draga úr árstíðarsveiflu. Framúrskarandi stundvísi á árinu, 83,9%, setur okkur í hóp fremstu flugfélaga Evrópu. Þessi niðurstaða er árangur sameiginlegs átaks alls starfsfólks Icelandair.“

Nánari upplýsingarFjárfestar: Íris Hulda Þórisdóttir, yfirmaður fjárfestatengsla. Netfang: iris@icelandair.isFjölmiðlar: Ásdís Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta og sjálfbærni. Netfang: asdis@icelandair.is

Viðhengi12 Traffic DataIcelandair: Metfjöldi farþega árið 2025